Sameiginlegur vinnumarkaður er hornsteinn norræns samstarfs. Fjölmennt og hæft vinnuafl er mikilvægasta auðlind okkar og leggur grunninn að samkeppnishæfum norrænum vinnumarkaði og þróun norrænu velferðarþjóðfélaganna.
Á sama tíma stendur norrænn vinnumarkaður frammi fyrir verulegum breytingum í kjölfar meðal annars lýðfræðilegrar þróunar, aukinnar hnattvæðingar, tækniþróunar og alþjóðlegrar samkeppni.
Samstarfsáætlunin í vinnumálum árin 2018–2021 tilgreinir nokkrar verulegar áskoranir í atvinnumálum og hvernig norrænt samstarf getur stuðlað að úrlausn þeirra.