Norðurlönd hafa löngum verið framsækin í málefnum LGBTI fólks í alþjóðlegum samanburði. En þrátt fyrir bætta löggjöf eru mörg viðfangsefni enn óleyst áður en LGBTI fólk fær notið sömu tækifæra og réttinda og annað fólk.
Árið 2020 hófu jafnréttisráðherrar Norðurlanda formlegt samstarf innan vébanda Norrænu ráðherranefndarinnar um jafnrétti og jafnræði LGBTI fólks á Norðurlöndum.
Textinn er viðauki við Norræna samstarfsáætlun um jafnréttismál 2019–2022 (framlengd til ársins 2024). Árið 2021 ákvað Norræna ráðherranefndin um jafnrétti og málefni LGBTI að norræna samstarfsáætlunin um jafnréttismál 2019–2022 yrði framlengd til ársins 2024. Viðaukinn er stjórntæki í norrænu samstarfi um málefni LGBTI fólks og tilgreinir helstu forgangsmál samstarfsins þar til gildistíma áætlunarinnar lýkur, 31. desember 2022.