Á formennskutíma Íslands í Norrænu ráðherranefndinni árið 2023 verður unnið ötullega að áherslusviðunum þremur: græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Við viljum stuðla að réttlátum grænum umskiptum með þátttöku allra kynslóða. Þá munum við leggja áhersu á að varpa ljósi á mikilvægi friðar sem undirstöðu velferðar, mannréttinda og umhverfis- og loftslagsverndar - þar sem sameinuð Norðurlönd geta verið afl til friðar.