Fyrir 20 árum síðan samþykkti alþjóðasamfélagið að vernda ósonlagið með því að minnka framleiðslu og notkun á ósoneyðandi efnum. Montrealbókunin um verndun ósonlagsins var undirrituð 16. september 1987 í Montreal í Kanada, og hefur þessi dagur verið valinn Dagur ósonlagsins. Montrealbókunin er talin vera árangursríkasti alþjóðasamningur sem gerður hefur verið á sviði umhverfismála.