Þrátt fyrir að margt er ólíkt með löndum Norðurlanda í víðtækum skilningi með tilliti til skipulags og stefnu í vinnumarkaðsmálum, þá er til staðar kjarni sameiginlegra vinnuaðferða, viðmiða og gilda, sem til samans skilgreina einkenni atvinnulífsins og stefnunnar í vinnumarkaðsmálum á Norðurlöndunum, sem réttlæta tal um „norræna líkanið“, en á mikilvægum sviðum skilur það sig frá aðstæðum á vinnumarkaði í flestum öðrum löndum − bæði í Evrópu og um víða veröld.
Áskorununum og möguleikunum á að finna nýjar hugmyndir, sem geta eflt samstarfið á Norðurlöndum í atvinnumálum, má skipta í fjóra flokka, en þeir eru:
• veigamikil, samnorræn málefni
• málefni stofnana í norrænu samstarfi
• norrænn vinnumarkaður og ESB
• Norðurlönd og umheimurinn.