Norðurlandaráð vill samþætta Norðurlönd betur með því að ryðja úr vegi skrifræðistengdum hindrunum sem torvelda fólki og fyrirtækjum að búa, vinna og mennta sig þvert á landamæri. Stefna Norðurlandaráðs um frjálsa för á Norðurlöndum 2026–2030 byggist á sjö grundvallarréttindum, meðal annars réttinum til vinnu, náms, heilbrigðisþjónustu, skilmerkilegra skattareglna og stafrænna lausna sem hægt er að nota landa á milli. Tækin þrjú, sem þingmennirnir geta beitt til að reka á eftir ríkisstjórnunum láti þær reka á reiðanum, eru þekkingarbanki, samstarfsnet og skýrir og mælanlegir vísar. Stefnan er sett á Norðurlönd þar sem öllum 27 milljónum íbúa þeirra er gert kleift að búa, starfa og ferðast hindrunarlaust.