Norrænu lífeyriskerfin virka vel hvert í sínu landi, en þau hafa ekki þróast í takt við vinnumarkað sem nær yfir fleiri lönd. Þegar lífeyrisréttindi færast yfir landamæri verða til stjórnsýsluhindranir sem valda óöryggi og fjárhagslegu tjóni fyrir norræna borgara sem flytjast milli landanna. Greiningin sýnir að þeir njóta oft lakari kjara en þeir sem eiga allan sinn starfsferil innan eins lands, meðal annars vegna skorts á yfirsýn, mismunandi reglna um greiðslu lífeyris og skattlagningu, auk verulegs munar á uppbyggingu og stjórnsýslu kerfanna. Í reynd lenda einstaklingarnir sjálfir oft í því að þurfa að samræma samskipti milli yfirvalda og lífeyrisaðila í mörgum löndum. Jafnframt skortir sameiginleg norræn tölfræðigögn um lífeyrisréttindi yfir landamæri, sem gerir erfitt að meta umfang vandans og þróun hans. Skortur á gögnum er því í sjálfu sér kerfislæg hindrun.