Samstarfsáætlun samstarfsráðherranna (MR-SAM) fyrir árin 2025–2030 veitir markvissa leiðsögn um framkvæmd samstarfsins á komandi árum. Hugsjónin um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030 er leiðarhnoða í allri starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar. Skýrum pólitískum áherslumálum í anda framtíðarsýnarinnar er ætlað að efla aðgerðir og áætlanir á sviði ráðherranefndarinnar sem stuðla að norrænum lausnum, leiða fram nýja og eftirsótta þekkingu og þróa frekar og styðja við mismunandi samstarfsform á norrænum vettvangi.