Það á að vera spennandi að búa, lifa og reka fyrirtæki hvar sem er á Norðurlöndum. Þeirri nýju stöðu sem upp er komin í heimsmálunum fylgja jafnframt auknar kröfur í tengslum við öryggismál, afkomu og viðbúnaðarmál. Norrænt samstarf á sviði byggða- og skipulagsmála mun fram til ársins 2030 snúast um græn umskipti sem ýta undir þróun og skapa tækifæri og gagnsemi fyrir íbúa hinna ýmsu svæða Norðurlanda. Jafnframt hyggst svið byggðamála leggja áherslu á að efla samkeppnishæfni og viðnámsþrótt norrænna svæða og styðja við samstarf á landamærasvæðum. Loks hyggst svið byggðamála leggja áherslu á vinnuna við að ýta undir góð og örugg lífsskilyrði alls staðar á Norðurlöndum, jafnt í daglegu lífi sem á krísutímum.