Samstarf á sviði dómsmála er í höndum norrænu dómsmálaráðherranna. Það byggist á meginreglum Helsingforssamningsins, almennum reglum um norrænt samstarf og forgangsverkefnum í norræna samstarfinu og þessari samstarfsáætlun. Samstarf dómsmálaráðherranna á árunum 2025–2030 snýst að miklu leyti um málefnasvið er varða norræna réttareiningu og réttaröryggi á Norðurlöndum. Samstarfið beinir einnig augum að forvörnum gegn glæpum og hryðjuverkum sem eru ósjaldan þess eðlis að snerta fleiri lönd en eitt.