Vaxandi áhrif loftslagsbreytinga, breyttur efnahagslegur og pólitískur veruleiki og nýleg orkukreppa hafa gert það að verkum að flestir Norðurlandabúar telja græn umskipti nauðsynleg. Framleiðsla endurnýjanlegrar orku er dreifðari en framleiðsla á jarðefnaeldsneyti eða kjarnorku og því hefur hún veruleg áhrif á landslag og landnotkun. Fyrir vikið eru norræn dreifbýlissvæði mikilvæg þegar kemur að því að uppfylla markmið um græn umskipti. Þó eru nú þegar teikn á lofti um að umbreytingarferlið muni hafa misjöfn áhrif í þéttbýli annars vegar og dreifbýli hins vegar og skilja svæði sem nú þegar eru jaðarsett enn frekar eftir.
Hvernig getum við tryggt réttlátari græn umskipti í dreifbýli? Með tillögum þessa stefnuyfirlits er leitast við að svara þessari spurningu í því augnamiði að yfirstíga algeng vandamál sem tengjast grænum orkuverkefnum og jafnframt að stuðla að því að heimafólk upplifi réttlæti.