Óvissa í alþjóðamálum, ör tækniþróun og þrýstingur á lýðræðisleg gildi skapa áskoranir á Norðurlöndum og gera samheldni norrænu landanna enn mikilvægari en áður. Í formennskuáætlun Noregs í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2027 er því lýst hvernig við hyggjumst efla samheldni og atorku Norðurlanda. Við viljum efla samfélagsöryggi, viðbúnað og sameiginlegan viðnámsþrótt okkar og standa vörð um lýðræðið, réttarríkið og grundvallarréttindi. Með hliðsjón af Framtíðarsýn okkar 2030 munum við beita okkur fyrir því að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Um leið viljum við leggja línurnar fyrir norræna samstarfið eftir 2030. Með samstöðu á óvissutímum gerum við norrænt samstarf í stakk búið til að mæta áskorunum nútímans og leggjum um leið grunn að sterkum og samheldnum Norðurlöndum.