Grundvallarbreytingar hafa orðið á stöðu öryggismála á Norðurlöndum, í Evrópu og í heiminum öllum. Stríðum, fjölþátta ógnum, netárásum og viðkvæmum aðfangakeðjum fylgja nýjar kröfur um norrænan viðbúnað og viðnámsþrótt.
Stefna Norðurlandaráðs um samfélagsöryggi inniheldur stefnumarkandi og skýr tilmæli um leiðir til að efla norrænt samstarf. Markmiðið er að vinna sameiginlega norræna stöðugreiningu, þróa sameiginlegt áhættumat og tryggja að löndin geti gripið til aðgerða sameiginlega áður en til áfalla kemur, þegar þau ríða yfir og þegar þau eru yfirstaðin.
Í stefnunni er sjónum meðal annars beint að þörfinni fyrir skýrari pólitíska stýringu, sterkt viðbúnaðarsamstarf og sameiginlegar aðgerðir, meðal annars á sviði aðfangaöryggis, stafræns áfallaþols, heilbrigðismála, loftslagsmála, menningarmála, menntamála og rannsókna.