Heilbrigðisráðherrar Norðurlanda á einu máli: Öflugt samstarf gegn nikótínfíkn barna og ungmenna
Notkun á rafrettum og nikótínpúðum fer vaxandi meðal barna og ungmenna á Norðurlöndum. Þess vegna hafa norrænu heilbrigðisráðherrarnir nú samþykkt sameiginlega yfirlýsingu sem miðar að því að fyrirbyggja nikótínfíkn og efla varnir fyrir þennan aldurshóp.
"Börn og ungmenni eiga að geta alist upp í friði fyrir vörum sem geta leitt til ævilangrar fíknar. Við verðum því að efla forvarnir sem og stuðning við þau sem vilja hætta að nota nikótín", segir heilbrigðis- og kirkjumálaráðherra Danmerkur, Ida Auken
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að nikótínvörur séu ekki hannaðar eða markaðssettar á hátt sem höfði til barna og ungmenna, auk þess sem stuðningur eigi að vera í boði fyrir þau sem vilja hætta nikótínnotkun.
Með aukinni þekkingarmiðlun og efldu norrænu samstarfi geta Norðurlönd líka látið sameiginlega rödd sína hljóma sterkar í umræðum um tóbaks- og nikótínvörur á alþjóðlegum vettvangi.